Page de couverture de Auðnast

Auðnast

Auðnast

Auteur(s): Ghost Network®
Écouter gratuitement

À propos de cet audio

Félagsleg, andleg og líkamleg heilsa, velsæld og vinnustaðir, heilbrigðisvísindi, meðferð og ráðgjöf – ekkert er Auðnast óviðkomandi í þessum málaflokkum. Í hverjum þætti fara Ragnhildur og Hrefna yfir viðfangsefni sem tengist þeirra daglegu störfum í Auðnast. Þær miðla út frá reynslu sinni og þekkingu en einnig fara þær yfir hvað vísindin hafa til málanna að leggja. Í hlaðvarpsþáttunum taka þær Hrefna og Ragnhildur einnig á móti góðum gestum. Fagfólk sem sest í stólinn hjá þeim mun ræða um fjölbreytt málefni líðandi stundar, út frá fræðum og reynslu. Ef þú hefur áhuga á að bæta líf þitt og heilsu, leggðu við hlustir. Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd. Hún er auk þess með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum þar sem hún lagði áherslu á samningatækni. Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 í þeim tilgangi að efla heilsu og velsæld fólks. Auðnast vinnuvernd aðstoðar þinn vinnustað í að vera leiðandi í öflugu vinnu- og heilsuverndarstarfi. Við leggjum áherslu á árangur og arðsemi með því að efla félagslegt öryggi og sjálfbærni. Við beinum sjónum okkar m.a. að heilsu, samskiptum, streitu, fjarvistum og félagslegri sjálfbærni. Með nánu samstarfi og samvinnu búum við til framúrskarandi vinnustaði með betra umhverfi fyrir starfsfólk. og framúrskarandi vinnustaði. Auðnast klíník veitir meðferð og ráðgjöf í þeim tilgangi að efla líðan, öryggi og heilsu fólksCopyright 2025 Ghost Network® Développement personnel Hygiène et mode de vie sain Psychologie Psychologie et santé mentale Réussite Sciences sociales
Épisodes
  • Sálfélagslegt öryggi á vinnustað
    Sep 9 2025

    Hvað þarf til þess að fólki líði vel á vinnustað? Kannski er það ekki bara jógasalur eða hópefli heldur grunnstoðir í skipulagi og vel upplýstir stjórnendur. Við tölum um það sem Auðnast stendur fyrir alla daga: Sálfélagslegt öryggi.

    Lesefni sem við mælum með:  

    https://bmcpublichealth.biomedcentral.com/articles/10.1186/s12889-023-16246-x?utm

    Voir plus Voir moins
    48 min
  • Tilfinningagreind
    Sep 5 2025

    Við ræðum hvað tilfinningagreind er út frá mismunandi sjónarhornum og hvernig við getum verið misgóð í henni eftir því í hvaða hlutverkum við sinnum. Við skoðum líka mat á eigin tilfinningagreind og hvernig við getum eflt hana í daglegu lífi. Hlustaðu og vertu í takt við tilfinningar þínar!

    Voir plus Voir moins
    42 min
  • Stöðutékk - á þér...
    Jul 27 2025

    Við ræðum einfaldar leiðir til að taka stöðu á sér persónulega og hvers vegna við erum líkleg til þess að festast í sama mynstrinu aftur og aftur. Við skoðum vanabrautir og hvernig sjálfsmildi getur varðað veginn í átt að farsælli breytingu. Það er að segja ef það er eitthvað sem þú vilt breyta.

    https://www.youtube.com/watch?v=hiiEeMN7vbQ – Carol dweck

    https://self-compassion.org/wp-content/uploads/2022/08/PsychReviewInPress.pdf

    https://www.thebowencenter.org/multigenerational-transmission-process

    Voir plus Voir moins
    39 min
Pas encore de commentaire